Fundarherbergi K er óhefðbundinn og skemmtilegur fundar- og viðburðasalur á annarri hæð. Þótt salurinn sé aðeins 34 m² sker hann sig úr með frumlegri hönnun og óvenjulegri aðstöðu, þar á meðal rólum. Salurinn býður upp á afslappað og skapandi umhverfi sem hentar sérstaklega vel fyrir hugmyndavinnu, minni vinnufundi, hópfundi og aðrar samkomur þar sem gott er að brjóta upp hefðbundið fundaform.
Í salnum er góð dagsbirta ásamt innbyggðum skjávarpa og sýningartjaldi. Gestir hafa einnig aðgang að útiverönd þar sem hægt er að fá sér ferskt loft í fundarhléum. Fundarsalur K sameinar frumlega hönnun og góða fundaraðstöðu og er skemmtilegur valkostur fyrir þá sem vilja breyta til frá hefðbundnu fundarumhverfi.
Útfærslumöguleikar á sal
Tækjabúnaður sem er innifalinn í salarleigu
Spurt og svarað
-
- Innbyggður skjávarpi og sýningartjald
- Wi-Fi
- Hljóðkerfi fyrir talað mál
- Þrif, borðbúnaður og þjónusta
- Uppsetning: leikhús
-
Já, hægt er að fá auka tæknibúnað gegn gjaldi. Vinsamlegast hafið samband fyrir nánari upplýsingar.