Hótel Reykjavík Grand
Hótel Reykjavík Grand er flaggskip Íslandshótela og fjögurra stjörnu ráðstefnuhótel fyrir ferðamenn og ráðstefnugesti sem vilja njóta glæsilegrar aðstöðu og framúrskarandi þjónustu.
Á hótelinu eru 311 herbergi og 11 ráðstefnu- og veislusalir sem gerir hótelið að stærsta ráðstefnuhóteli landsins. Þar er einnig veitingastaður, bar, líkamsræktaraðstaða og Reykjavík Spa heilsulind.
Hótel Reykjavík Grand uppfyllir skilyrði Svansvottunar fyrir hótel. Þetta tryggir að ítrustu kröfur varðandi umhverfisráðstafanir, heilsu, virkni og gæðakröfur hafi verið uppfylltar. Svansmerkið er opinbert norrænt umhverfismerki um sjálfbærni.
Herbergi
Ertu að koma úr löngu flugi og þarft að slaka á? Með 311 herbergi í öllum stærðum og gerðum erum við viss um að þú munt finna það sem þú þarft fyrir dvöl þína á Íslandi.
Herbergin eru útbúin öllum nútímaþægindum og hægt er að opna á milli nokkurra herbergja og tengja þau þannig saman. Allir gestir fá svo aðgang að líkamsræktinni í Reykjavík Spa sem er staðsett á neðri jarðhæð hótelsins.
Grand Brasserie
Með sanna ástríðu fyrir gæðamat erum við stolt af því að bjóða upp á úrval af réttum sem eru eldaðir með besta hráefninu og valdir úr ferskasta hráefninu.
Miðgarður Bar og Torfastofa Lounge bjóða upp á mikið úrval af léttum réttum og fjölbreytt úrval af vínum og kokteilum. Allir barir og veitingastaðir eru opnir daglega.
Svör við algengum spurningum
Innritun er eftir kl 15:00 og útritun er fyrir kl 12:00.
Snemmbúin og síðbúin innritun er í boði gegn vægu gjaldi en tekur ávallt mið af bókunarstöðu hótelsins hverju sinni og birtist þá sem valmöguleiki í tölvupósti sem gestir fá nokkrum dögum fyrir komu. Einnig er hægt að hafa samband við hótelið.
Ef bókað er á okkar vef og greitt við komu, þá er hægt að afbóka eða breyta bókun allt að 48 klst. fyrir komu í gegnum link sem fylgir með bókunarstaðfestingu.
Athugið að verð og framboð kann að hafa breyst.
Morgunverður er í boði frá kl. 7:00 til kl. 10:00.
Já, hundar eru velkomnir á hótelið. Takmarkað magn herbergja er í boði á hverju hóteli fyrir sig og mikilvægt að taka fram þegar gisting er bókuð að hundar eru með í för. Hægt er að kynna sér skilmála hér.
Já, bílastæði eru í boði fyrir gesti hótelsins.
Já, veitingastaðurinn Grand Brasserie er á hótelinu ásamt Reykjavík Spa glæsilegri snyrti og nuddstofu með fallegri heilsulind og heilsuræktaraðstöðu.
Já, Hótel Reykjavík Grand er stærsta ráðstefnuhótel landsins og hentar fullkomlega fyrir gesti sem krefjast frábærrar þjónustu og aðstöðu.