Fara á efnissvæði

Háteigur

Glæsilegur veislu- og fundarsalur á Hótel Reykjavík Grand

Hámarksfjöldi200
Stærð í fm.298
Lengd19,3
Breidd12,5
Hæð3,6
Háteigur conference- and banquet hall at Hotel Reykjavík Grand.
Háteigur Reception at Hotel Reykjavík Grand
Háteigur conference room at Hotel Reykjavik Grand
Háteigur
Mynd 1 af 4
Háteigur ráðstefnu- og veislusalur

Háteigur er rúmgóður veislusalur á fjórðu hæð Hótel Reykjavík Grand með fallegu útsýni og aðgengi að svölum. Salurinn hentar vel fyrir veislur og viðburði af ýmsu tagi, allt frá brúðkaupum og móttökum til funda, ráðstefna og einkasamkvæma. Falleg vegglýsing og loftlýsing skapa hlýlega og eftirminnilega stemningu.

Salurinn rúmar 170–200 gesti við hringborð, 200 gesti í bíóuppstillingu og allt að 50 gesti í U-uppstillingu. Háteigur er leigður með hringborðum, en hægt er að aðlaga uppstillingu salarins eftir þörfum gegn breytingagjaldi.

Í salnum er þráðlaust net og fullbúinn fundarbúnaður, þar á meðal skjávarpi, sýningartjald, hljóðkerfi, púlt og panel-hljóðnemi.

Fyrir framan salinn er rúmgott forrými sem hentar vel fyrir fordrykk, móttökur og samveru gesta áður en viðburður hefst.

Útfærslumöguleikar á sal

Móttaka 200
Hringborð 170-200
Kabarett 170
Kennsla 180
Leikhús 200
U Borð 50

Tækjabúnaður sem er innifalinn í salarleigu

Wi-Fi Þráðlaust net
Skjávarpi 3x NEC P1004UL - 10.000 lumen
Sýningartjald 1x 12-14m eða 2x 4,4x2,5m
Hljóð L-acoustic kerfi, Yamaha dreifikerfi
Lýsing Veggjaljós og stjörnuhimin sem hægt er að breyta litum á. Loftljós sem eru dimmanleg eftir röðum.

Spurt og svarað