Fosshótel Austfirðir er notalegt þriggja stjörnu hótel staðsett í gömlu húsakynnum Franska spítalans á Fáskrúðsfirði og hentar vel þeim sem vilja njóta kyrrðar og náttúrufegurðar Austfjarða.
Hótelið stendur við Hafnargötuna í fjórum endurbyggðum húsum sem voru endurreist í samvinnu við Minjavernd til að varðveita sögulegan svip staðarins. Byggingarnar hlutu eftirsótt menningarverðlaun Evrópu, Europa Nostra, fyrir varðveislu menningararfleifðar – fyrstu úthlutun verðlaunanna hér á landi.
Veitingastaðurinn L'Abri er á hótelinu, ásamt safni sem gerir skil á lífi og starfi franskra sjómanna sem gegna stóru hlutverki í sögu bæjarins. Hótelgestir fá afslátt af aðgangseyri inn á safnið.
Frá og með ágúst 2024 hafa öll hótelin okkar hlotið Green Key vottun frá FEE (e. Foundation for Environmental Education), sem gerir okkur að fyrstu sjálfbærnivottuðu hótelkeðjunni á Íslandi.
Verið hjartanlega velkomin í sögulega stemningu á Austfjörðum.