Fara á efnissvæði

Hilton Reykjavík

Hilton Reykjavík

Íslandshótel tók við rekstri hótelsins þann 1. september 2026 og mun það starfa undir nafninu Hilton Reykjavík. Hótelið mun starfa áfram undir Hilton vörumerkinu og bjóða upp á fyrsta flokks gistingu fyrir bæði innlenda og erlenda gesti, auk fjölbreyttrar aðstöðu fyrir fundi, ráðstefnur og viðburði.

Staðsetningin í hjarta borgarinnar, nálægt Laugardalnum, íþrótta- og afþreyingarsvæðum og miðbæ Reykjavíkur, gerir hótelið að eftirsóttum valkosti fyrir viðskiptaferðalanga, hópa og ferðamenn.

Á hótelinu eru 251 herbergi, fjölbreytt aðstaða fyrir fundi og ráðstefnur, veitingastaðurinn Dom Brasserie og bar, auk líkamsræktar- og vellíðunar aðstöðu. Fjölbreytt aðstaða og góð þjónusta gera hótelið að góðum valkosti fyrir bæði frístunda- og viðskiptaferðir, hvort sem ferðast er einn eða í stærri hópi.

Herbergi

Hvort sem þú ert í Reykjavík í helgarferð, viðskiptaerindum eða í lengri dvöl er gott að geta slakað á í þægilegu umhverfi. Hilton Reykjavík býður upp á 251 stílhreint herbergi og svítur sem eru vel búin öllum helstu þægindum. Í öllum herbergjum er meðal annars frítt Wi-Fi, te- og kaffiaðstaða, lítill kælir og öryggishólf.

Bóka núna
Reykjavik Spa

Reykjavík Spa - Hilton

Taktu þér tíma frá amstri dagsins og njóttu slökunar í notalegu umhverfi. Reykjavík Spa Hilton er staður til að hvílast, endurnærast og njóta góðrar stundar.

Sjá meira

DOM Brasserie & Bar

DOM Brasserie & Bar er staðsett á Hilton Reykjavík og er glæsilegur staður til að koma saman yfir góðum mat og drykk.

Á DOM Brasserie & Bar fara góður matur, vel valdir drykkir og afslöppuð stemning saman. Komdu við í mat, njóttu Happy Hour eða gerðu þér dagamun með High Tea. DOM er notalegur samkomustaður hvort sem tilefnið er hádegisverður, kvöldstund eða einfaldlega góð stund í góðum félagsskap.

Sjá heimasíðu

Svör við algengum spurningum